ReachELITE

ReachELITE - Ísland



ReachELITE – lærðu lífstíl ólympíufar


Vilt þú ná þeim markmiðum sem þú hefur sett stefnuna á í þínu líf
Með því að nýta sér 6 mánaða persónulega ReachELITE aðferðina, munt þú læra að ná þeim markamiðum sem þú vilt, með sömu aðferðum og ólympíufarar nýta sér

Hafðu samband - gsm 661 7522 eða mads@reachelite.com

Hvað get ég boðið upp á?

* Virka hlustun
* Góðar spurningar
* Málamunstur sem opnar fyrir að læra ómeðvitað
* Aðstoð við að fjarlægja innri hindranir
* Aðstoð við að breyta neikvæðu hegðunarmunstri
* Aðstoð við að átta þig á gildum þínum og sannfæringum þínum
* Aðstoð við að átta þig á raunverulegri forgangsröðun þinni á öllum sviðum lífsins
* Aðstoð við ástandsstjórnun

Hafðu samband ef þú vilt prufa hvort einkaþjálfun er eitthvað fyrir þig

Sendu mail á: mads@reachelite.com

eða hringtu i: 661 7522


Siðferðisreglur International Coaching Federation (ICF)

Almenn fagleg hegðun
Sem markþjálfi mun ég:

1) Tileinka mér hegðun sem varpar jákvæðu ljósi á markþjálfunarfagið og forðast hegðun eða ummæli sem varpað gætu skugga á skilning almennings á markþjálfun eða viðurkenningu á henni sem starfsgrein.

2) Ekki vísvitandi segja neitt það opinberlega sem er ósatt eða villandi, eða viðhafa rangar fullyrðingar í nokkrum rituðum gögnum sem tengjast markþjálfunarfaginu.

3) Virða mismunandi aðferðir við markþjálfun. Ég mun líka virða störf annarra og framlag og ekki segja það ranglega mitt.

4) Vera mér meðvitaður um hvaðeina sem gæti leitt til misnotkunar á áhrifum mínum og gera mér grein fyrir eðli markþjálfunar og því hvernig hún getur haft áhrif á líf annarra.

5) Kappkosta að varast að láta persónuleg mál skerða, fara í bága við eða trufla störf mín sem markþjálfi eða mín faglegu sambönd. Hvenær sem staðreyndir og kringumstæður kalla á það mun ég strax leita mér faglegrar aðstoðar og ákveða aðgerðir, þar á meðal hvort rétt væri að rjúfa tímabundið eða að fullu markþjálfunar viðskiptasambönd mín.

6) Sem leiðbeinandi eða umsjónarmaður núverandi og verðandi markþjálfa mun ég hegða mér samkvæmt siðareglum ICF við hvers kyns leiðbeiningar- og umsjónarstörf.

7) Stunda rannsóknir og kynna niðurstöður af fagmennsku og heiðarleika og samkvæmt viðurkenndum vísindareglum. Rannsóknirnar mun ég aðeins stunda með samþykki eða heimild þeirra sem málið varðar, og á þann hátt að þátttakendur séu sem best verndaðir fyrir mögulegu tjóni. Allar rannsóknir munu verða í samræmi við lög þess lands sem þær eru stundaðar í.

8) Skilmerkilega stofna til, viðhalda, geyma og farga öllum gögnum um vinnu í tengslum við markþjálfun þannig að fyllsta trúnaðar sé gætt og viðeigandi lögum fylgt.

9) Nota tengiliðaupplýsingar um ICF-félaga (netföng, símanúmer o.þ.h.) aðeins þannig og að því marki sem ICF heimilar.
Fagleg hegðun gagnvart viðskiptavinum

10) Ábyrgjast skýr og viðeigandi takmörk er taka tillit til menningarmun varðandi líkamlega snertingu sem ég gæti haft við viðskiptavini mína.

11) Eiga ekki í kynlífssambandi við viðskiptavini mína á nokkurn hátt.

12) Gera skýrt samkomulag við viðskiptavini mína og virða allt sem um er samið í tengslum við faglegt markþjálfunarsamband.

13) Tryggja, fyrir eða á fyrsta fundi, að viðskiptavinurinn skilji eðli markþjálfunar, mörk trúnaðar, fjárhagslegar ráðstafanir og aðra skilmála samkomulags um markþjálfun.

14) Gera nákvæma grein fyrir starfshæfni minni, sérfræðikunnáttu og reynslu sem markþjálfi.

15. Ekki viljandi gefa villandi eða röng fyrirheit um hvaða gagn viðskiptavinurinn muni hafa af markþjálfun eða af mér sem markþjálfa sínum.

16) Ekki veita núverandi eða verðandi viðskiptavinum mínum upplýsingar eða ráð sem ég veit eða held að séu villandi.

17) Ekki vísvitandi misnota á nokkurn hátt markþjálfunarsamband mitt við viðskiptavini mér til persónulegra, faglegra eða fjárhagslegra hagsbóta eða ábata.

18) Virða rétt viðskiptavinarins til að rjúfa þjálfunarferlið hvenær sem er. Ég mun vera vakandi fyrir merkjum um að viðskiptavinurinn hafi ekki lengur hag af markþjálfunarsambandi okkar.

19) Ef ég tel að viðskiptavini mínum væri betur þjónað hjá öðrum markþjálfa eða annarsstaðar frá mun ég hvetja viðskiptavininn til breytinga.

20) Ég mun leggja til að viðskiptavinir mínir leiti þjónustu annarra fagaðila telji ég það viðeigandi eða nauðsynlegt.

21) Ég mun gera allar eðlilegar ráðstafanir til að tilkynna það viðeigandi yfirvöldum ef viðskiptavinur lætur í ljósi ætlun til að stofna sjálfum sér eða öðrum í hættu.
Trúnaður/friðhelgi

22) Ég mun virða trúnað gagnvart upplýsingum frá viðskiptavininum mínum, nema hann hafi heimilað annað eða lög krefjast þess.

23) Ég mun afla samþykkis viðskiptavina minna áður en ég gef upp nöfn þeirra sem viðskiptavina minna eða heimildarmanna, eða nokkuð annað sem gefur til kynna hverjir viðskiptavinirnir mínir eru.

24) Ég mun afla samþykkis þess sem þiggur markþjálfun áður en ég gef nokkrar upplýsingar til handa þeim sem greiða fyrir þjónustuna.
Hagsmunaárekstrar

25) Ég mun reyna að forðast árekstra milli hagsmuna minna og viðskiptavina minna.

26) Hvenær sem mögulegur eða raunverulegur hagsmunaárekstur kemur upp, mun ég upplýsa og ræða það hreinskilnislega við viðskiptavin minn. Ég mun ræða hvernig taka skuli á málinu þannig að það þjóni hagsmunum hans.

27) Ég mun greina viðskiptavini mínum frá hvers kyns þóknun frá þriðja aðila sem ég kann að hljóta fyrir að vísa viðskiptavinum til þeirra.

28) Ég mun því aðeins semja um þjónustu/vöruskipti eða aðra ópeningalega þóknun að það spilli ekki markþjálfunarsambandinu.

(Íslensk þýðing úr ensku frá ICF.  Leiðtogi ehf.)